• Bakgrunnsmynd
    Myndskreyting jaðra
    Verðlaunað, opið og frjálst forrit fyrir vinnslu myndskeiða
    SKAPAÐU ÁHRIFAMIKIL MYNDSKEIÐ!
    Tímalína OpenShot
    OpenShot myndskeiðsbútur 1
    OpenShot myndskeiðsbútur 2
  • Bakgrunnsmynd
    Skjámynd af OpenShot
    EINFALT & FRJÁLST!
    Linux-táknmynd
    Mac-táknmynd
    Windows-táknmynd
    Táknmynd Chrome OS
    Hentu þér í að gera falleg myndskeið strax í dag!

Handunnið með að leiðarljósi og 100% FRJÁLST, með opnum grunnkóða! Frjáls & opinn grunnkóði að eilífu (GPL útgáfa 3.0)

OpenShot er ótrúlega skemmtilega undravert frábærlega einfalt og öflugt!

Við hönnuðum OpenShot forritið til þess að vera einfalt í notkun, auðvelt að læra á það, auk þess að vera eins öflugt til vinnslu myndskeiða og kostur er. Kíktu hér á nokkra af vinsælustu eiginleikunum.

Helstu eiginleikar

Fjölkerfa

OpenShot er myndskeiðaritill sem virkar á mörgum stýrikerfum, með stuðning við Linux, Mac og Windows. Byrjaðu bara núna strax og náðu í uppsetningarforritið.

Skera & Sneiða

Vertu fljótur að sníða til myndskeiðin þín, svo að bestu stundirnar njóti sín betur. OpenShot er með margar aðferðir til að klippa til myndskeið.

Lykilrammar í hreyfimyndum

Með öflugu hreyfimyndavinnslukerfi geturðu deyft, sneitt, látið hoppa, skoppa og hreyft eiginlega allt í myndskeiðsverkefninu þínu.

Ótakmarkörkuð spor

Bættu við eins mörgum lögum og þér sýnist, bakgrunnsmyndskeiðum, hljóðsporum og fleiru.

Sjónhverfingar

Með sjónhverfingakerfinu okkar geturðu fjarlægt bakgrunn úr myndskeiðum, snúið við litum, stillt birtustig og fleira af því taginu.

Bylgjuform hljóðs

Skoðaðu hljóðskrárnar þínar sem bylgjuform, það er jafnvel hægt að myndgera þau í myndskeiðum.

Titlaritill

Mjög einfalt er að setja texta og titla inn í myndskeið. Þú hetur notað eitthvað af sniðmátunum okkar eða búið til þín eigin.

Þrívíddarhreyfingar

Myndgerðu fallegar þrívíðar hreyfimyndir með textum og sjónhverfingum, eins og til dæmis snjókomu, linsuglampa eða fljúgandi texta.

Hægar hreyfingar & Tímabrellur

Stýrðu hraða og hreyfingum með því að hægja, snúa við eða hraða tímanum í myndskeiðum. Notaðu forstillingar eða hreyfibrellur til að stýra hraða og stefnu afspilunar.

Vinna myndskeið

Dragðu og slepptu myndskeiðum, hljóðskrám eða myndum beint úr skráastjóranum þínum yfir í OpenShot. Það getur varla verið einfaldara.

70+ tungumál

OpenShot er tiltækt á mörgum tungumálum, hægt er að þýða forritið á netinu með LaunchPad.

Einfalt notandaviðmót

Við höfum hannað OpenShot með það í huga að þetta eigi að vera vinalegasti og auðveldasti myndskeiðaritill í heimi. Prófaðu bara og sjáðu sjálf(ur).